Brann komst áfram og Elías hélt hreinu

Brann, undir stjórn Freys, tryggði sér sæti í umspili um þátttöku í Evrópudeildinni.
Ljósmynd/Brann.no

Brann, undir stjórn Freys Alexanderssonar, tryggði sér í kvöld sæti í umspili um þátttöku í Evrópudeildinni þrátt fyrir 1:0 tap gegn BK Häcken í Bergen. Norska liðið hafði unnið fyrri leikinn í Gautaborg 2:0, þar sem Sævar Atli Magnússon skoraði bæði mörkin og fór því áfram með 2:1 samanlagðan sigur.

Í kvöld voru Sævar Atli og Eggert Aron Guðmundsson í byrjunarliði Brann og spiluðu allan leikinn. Eina mark kvöldsins kom á 38. mínútu þegar Denzel De Roeve skoraði sjálfsmark. Brann fékk tækifæri til að jafna í uppbótartíma úr vítaspyrnu, en Nick Castro brást bogalistin af víta­punkt­in­um.

Brann hefur nú tryggt sér sæti í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar að lágmarki og mætir kýpverska liðinu AEK Larnaca í umspili um sæti í Evrópudeildinni.

Á sama tíma tryggði danska liðið Midtjylland, með Elías Rafn Ólafsson í markinu, sér sæti í umspili um Evrópudeildarsæti. Liðið vann Frederikstad frá Noregi 5:1 samanlagt eftir 3:1 sigur í fyrri leiknum og 2:0 sigur í kvöld, þar sem bæði mörkin komu á átta mínútna kafla í fyrri hálfleik. Midtjylland mætir finnska liðinu KuPS í umspilinu.

Þá kom Guðmundur Þórarinsson inn á sem varamaður í framlengingu hjá Noah gegn Lincoln Red Imps. Staðan eft­ir venju­leg­an leiktíma og fram­leng­ingu var markalaus og réðust úr­slit­in því í víta­keppni. Guðmundur skoraði úr sínu víti en Noah beið þar lægri hlut, 6:5, og er úr leik í Evrópudeildinni. Liðið fer beint í umspil Sambandsdeildarinnar.

Fyrri frétt

Fetar í fótspor Hazard

Næsta frétt

Utrecht og Preston berjast um Andra