Fetar í fótspor Hazard

Hákon Arnar mun bera treyju númer 10 hjá Lille á nýju tímabili.
Ljósmynd/Lille

Hákon Arnar Haraldsson mun bera treyju númer 10 hjá Lille á nýju tímabili. Á síðustu leiktíð var hann í treyju númer 7 og þar áður í treyju númer 17.

Númer 10 er eitt virtasta númer félagsins og bar Eden Hazard það tímabilið 2011–2012, áður en hann fór til Chelsea. Nú losnaði treyjan þegar Rémy Cabella gekk til liðs við Olympiacos í sumar.

Hákon er að hefja sitt þriðja tímabil með Lille og hefur leikið 22 A-landsleiki fyrir Ísland, þar sem hann hefur skorað þrjú mörk.

Fyrsti leikur Lille í frönsku úrvalsdeildinni er á sunnudaginn kemur þegar liðið fer í heimsókn til Brest.

Fyrri frétt

Opnaði markareikninginn í Svíþjóð

Næsta frétt

Brann komst áfram og Elías hélt hreinu