Opnaði markareikninginn í Svíþjóð

Mikael Neville skoraði sitt fyrsta mark fyrir Djurgården.
Ljósmynd/Djurgården

Mikael Neville Anderson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Djurgården þegar liðið vann 4:1 sigur gegn D-deildarliðinu Järfälla í sænska bikarnum í gær.

Mikael hóf leikinn á varamannabekknum hjá Djurgården en kom inn á í síðari hálfleik þegar staðan var 1:1. Hann skoraði úr vítaspyrnu á 67. mínútu og kom liðinu í 2:1 forystu.

Þrátt fyrir úrslitin var Mikael ekki sáttur með frammistöðu liðsins. „Það var frábært að skora mitt fyrsta mark, en við getum ekki verið ánægðir með hvernig við spiluðum. Þetta var langt frá því að vera gott,“ sagði hann eftir leik.

„Við vorum heppnir að fá tvær vítaspyrnur og spil okkar, bæði með og án bolta, var einfaldlega ekki nógu gott,“ bætti hann við og hrósaði andstæðingunum fyrir frammistöðu sína. „Þeir gáfu allt í leikinn, en við hefðum þurft að mæta með meiri ákefð.“

 
 
 
 
 
View this post on Instagram
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

A post shared by SportExpressen.se (@sportexpressen)

Fyrri frétt

Oliver yfirgefur ÍBV eftir tímabilið – Fer til Króatíu

Næsta frétt

Fetar í fótspor Hazard