Úrhelli stöðvaði leik Blackburn

Leikur Blackburn Rovers og Sheffield Wednesday var flautaður af.
Ljósmynd/Blackburn

Leikur Blackburn Rovers og Sheffield Wednesday í ensku B-deildinni var flautaður af eftir rúmlega klukkustundarleik í dag vegna mikillar rigningar á heimavelli Blackburn. Vatn safnaðist á vellinum og boltinn rann ekki eðlilega, sem varð til þess að dómarinn ákvað að stöðva leikinn.

Andri Lucas Guðjohnsen hóf leikinn í byrjunarliðinu hjá Blackburn og liðið hafði tekið forystu á 33. mínútu eftir góða sókn.

Að lokinni stuttri bið og skoðun á vellinum var ljóst að ekki væri hægt að halda leiknum áfram og var hann því stöðvaður. Þetta er í annað sinn á tímabilinu sem leikur Blackburn er stöðvaður vegna veðurs þegar liðið er í forystu. Nýr leiktími verður ákveðinn síðar.

Stefán Teitur Þórðarson lék í klukkutíma þegar lið hans Preston North End gerði 1:1 jafntefli við Wrexham á heimavelli sínum. Preston er í 5. sæti deildarinnar með 31 stig.

Fyrri frétt

Slæmt gengi Fiorentina held­ur áfram

Næsta frétt

Glæsilegt aukaspyrnumark Óttars – Myndband