Fiorentina átti enn einn erfiðan dag í ítölsku A-deildinni og tapaði 3:1 gegn Sassuolo á útivelli í dag. Fiorentina bíður enn eftir fyrsta sigri tímabilsins eftir fjórtán umferðir.
Albert Guðmundsson, sem hafði komið inn á í síðustu tveimur deildarleikjum Fiorentina, var í byrjunarliðinu að þessu sinni og lék allan leikinn í fremstu línu.
Fiorentina byrjaði vel og komst yfir snemma leiks, en jafnað var innan skamms og Sassuolo bætti við marki rétt fyrir leikhlé. Heimaliðið innsiglaði svo sigurinn með þriðja markinu um miðjan seinni hálfleik.
Fiorentina er í neðsta sæti deildarinnar með sex stig og hefur tapað átta leikjum. Fimm stig skilja liðið frá öruggu sæti.
Ísak Bergmann Jóhannesson kom inn á sem varamaður á 73. mínútu hjá Köln sem gerði svekkjandi 1:1 jafntefli við St. Pauli í þýsku úrvalsdeildinni.
St. Pauli skoraði jöfnunarmark á fjórðu mínútu uppbótartímans og því um afar svekkjandi jafntefli að ræða fyrir Köln, sem er í 8. sæti deildarinnar með 16 stig eftir þrettán umferðir.