Ungstirnið skrifaði sig í sögu­bæk­urn­ar

Viktor Bjarki skráði sig í sögubækurnar í Meistaradeild Evrópu.
Ljósmynd/FC Kaupmannahöfn

Viktor Bjarki Daðason, 17 ára framherji FC Kaupmannahafnar, skoraði í 3:2-sigri á Kairat Almaty í kvöld í 5. umferð deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu. Markið kom á 26. mínútu og var hans annað í keppninni.

Með markinu varð Viktor yngsti leikmaður í sögu Meistaradeildarinnar til að skora í tveimur eða fleiri leikjum í keppninni, met sem áður var í eigu Lamine Yamal hjá Barcelona.

Viktor hefur nú skorað tvö mörk í fyrstu þremur leikjum sínum í keppninni og verið áberandi á sínu fyrsta tímabili með aðalliði FC Kaupmannahafnar.

Sigurinn í kvöld var jafnframt sá fyrsti hjá FC Kaupmannahöfn í deildarkeppninni og hefur liðið nú fjögur stig eftir fimm umferðir.

Fyrri frétt

Viktor Bjarki skoraði aftur í Meistaradeildinni – Myndband

Næsta frétt

Davíð skoraði í fram­leng­ingu