Viktor Bjarki skoraði aftur í Meistaradeildinni – Myndband

Viktor Bjarki skoraði sitt annað mark í Meistaradeild Evrópu.
Ljósmynd/FC Kaupmannahöfn

Viktor Bjarki Daðason, 17 ára framherji FC Kaupmannahafnar, lét til sín taka í Meistaradeild Evrópu í kvöld þegar hann skoraði fyrsta mark leiksins í 3:2-sigri danska liðsins gegn Kairat Almaty. Þar með hefur hann gert tvö mörk í sínum fyrstu þremur leikjum í keppninni.

Viktor var í byrjunarliði FC Kaupmannahafnar í fyrsta sinn í Meistaradeildinni og sýndi strax hversu öruggur hann er í teignum. Markið kom á 26. mínútu þegar hann fylgdi vel á eftir og náði að stýra boltanum í netið af stuttu færi. Hann átti góðan leik og var inni á vellinum allt fram í uppbótartíma.

Með markinu bætist Viktor í hóp fárra Íslendinga sem skorað hafa oftar en einu sinni í Meistaradeildinni. Eiður Smári Guðjohnsen, Hákon Arnar Haraldsson og Arnór Sigurðsson eru þeir einu sem hafa náð sama árangri fram að þessu.

FC Kaupmannahöfn virtist ætla að ganga örugglega frá leiknum þegar liðið komst í 3:0, en Kairat Almaty minnkaði muninn tvisvar á lokamínútunum og setti pressu á danska liðið undir blálokin.

FC Kaupmannahöfn er í 29. sæti í keppninni með fjögur stig eftir fimm umferðir, en á enn möguleika á umspili ef það tekst að færa sig upp í 24. sæti eða ofar þegar upp er staðið.

Hér að neðan má sjá markið hans Viktors í kvöld, sem birtist á vef Vísis.

Fyrri frétt

Tómas byrjaði annan leikinn í röð

Næsta frétt

Ungstirnið skrifaði sig í sögu­bæk­urn­ar