Álasund er komið áfram í umspili um sæti í efstu deild í Noregi eftir 3:1 sigur á Egersund í kvöld. Liðið endaði í 4. sæti B-deildarinnar og fór þar með beint í umspilið, sem það hefur nú tryggt sér áframhald í með sigri sínum.
Davíð Snær Jóhannsson og Ólafur Guðmundsson hófu leikinn á varamannabekknum hjá Álasundi. Davíð kom inn af bekknum á 77. mínútu þegar staðan var 1:0 fyrir Egersund, en Álasund jafnaði undir lok venjulegs leiktíma og knúði fram framlengingu. Þar bætti Álasund við tveimur mörkum, það fyrra snemma í framlengingunni og það seinna skoraði Davíð undir lok hennar.
Álasund mætir Kongsvinger í úrslitaleik umspilsins. Sigurvegarinn fær síðan tækifæri til að etja kappi við Bryne, sem endaði í þriðja neðsta sæti úrvalsdeildarinnar, í einvígi um sæti í efstu deild á næsta tímabili.