Twente og Vålerenga í Meistaradeildina

Amanda og Sædís Rún eru komnar áfram í Meistaradeildina með liðum sínum.
Ljósmynd/Twente

Amanda Andradóttir og liðsfélagar hennar í hollenska meistaraliðinu Twente tryggðu sér í gærkvöld sæti í aðalkeppni Meistaradeildar Evrópu. Liðið vann Katowice frá Póllandi 4:1 í seinni leik liðanna og einvígið samanlagt 8:1. Amanda kom inn á sem varamaður á 80. mínútu.

Vålerenga frá Noregi er einnig komið í Meistaradeildina annað árið í röð eftir 2:1-sigur á Ferencvaros í Ungverjalandi, samanlagt 5:1. Sædís Rún Heiðarsdóttir lék allan leikinn í vörninni hjá Vålerenga og Arna Eiríksdóttir spilaði sinn fyrsta leik fyrir liðið eftir að hafa komið inn á í seinni hálfleik.

Ekki gekk jafn vel hjá íslensku leikmönnunum í Brann og Häcken. Häcken laut í lægra haldi gegn Atlético Madrid eftir framlengingu, samanlagt 3:2. Fanney Inga Birkisdóttir var varamarkvörður hjá Häcken og Eyrún Embla Hjartardóttir utan hóps. Brann tapaði 3:0 fyrir Manchester United og einvíginu samanlagt 3:1. Diljá Ýr Zomers kom inn á undir lokin.

Fyrri frétt

Kom inn af bekkn­um og skoraði tvö

Næsta frétt

Kristian skoraði og lagði upp í stórsigri – Myndband