Kom inn af bekkn­um og skoraði tvö

Vigdís Lilja gerði sér lítið fyrir og skoraði tvö mörk í stórsigri Anderlecht.
Ljósmynd/Anderlecht

Vigdís Lilja Kristjánsdóttir gerði sér lítið fyrir og skoraði tvö mörk í 9:0-sigri Anderlecht á Aris Saloniki í 1. umferð Evrópubikars kvenna í gærkvöld.

Hún kom inn á sem varamaður á 63. mínútu þegar staðan var orðin 5:0 og bætti strax við sjötta markinu. Vigdís Lilja skoraði síðan lokamark leiksins og tryggði Anderlecht þar með glæsilegan 14:0-sigur í einvíginu samanlagt. Hún hafði einnig skorað í fyrri leiknum í Grikklandi.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Cecilía Rán Rúnarsdóttir voru báðar í byrjunarliðinu hjá Inter þegar liðið tryggði sér áframhald með samanlagðan 5:1-sigur á Hibernian.

Bæði Anderlecht og Inter eru því komin áfram í aðra umferð forkeppninnar. Dregið verður í næstu umferð á morgun.

Fyrri frétt

Eggert skaraði fram úr í bikarsigrinum

Næsta frétt

Twente og Vålerenga í Meistaradeildina