Eggert skaraði fram úr í bikarsigrinum

Eggert Aron átti afbragðsleik með Brann þegar liðið fór áfram í norsku bikarkeppninni.
Ljósmynd/Bergens Tidende

Eggert Aron Guðmundsson átti afbragðsleik með Brann þegar liðið vann Mjöndalen 5:1 á útivelli í 32-liða úrslitum norsku bikarkeppninnar í gær.

Eggert Aron var mjög áberandi á miðjunni, stjórnaði leik liðsins og kom að fyrstu tveimur mörkum Brann með vel útfærðum stoðsendingum. Eggert lék fyrstu 59 mínúturnar og fór þá af velli, en hafði þá þegar verið einn besti maður vallarins.

Sævar Atli Magnússon sat allan tímann á varamannabekknum hjá Brann, sem undir stjórn Freys Alexanderssonar tryggði sér öruggt sæti í 16-liða úrslitunum.

Fyrri frétt

Fékk strax traustið hjá nýjum stjóra

Næsta frétt

Kom inn af bekkn­um og skoraði tvö