Tómas Bent Magnússon kom inn á sem varamaður á 77. mínútu þegar Hearts vann góðan 2:0-útisigur á Rangers í skosku úrvalsdeildinni í dag.
Sigurinn var sögulegur fyrir Hearts sem hafði ekki unnið á Ibrox-leikvanginum í ellefu ár. Lawrence Shankland skoraði bæði mörkin og tryggði liðinu þrjú dýrmæt stig.
Tómas, sem gekk í raðir Hearts fyrir tímabilið, hafði áður komið við sögu í fyrsta leik tímabilsins í sigri gegn Aberdeen. Eftir fimm umferðir er Hearts á toppi deildarinnar með 13 stig.