Sævar Atli Magnússon var hetja Brann þegar liðið lagði Vålerenga, 3:2, í hörkuleik á Brann-leikvanginum í Bergen í dag. Um 17 þúsund áhorfendur fögnuðu gríðarlega þegar úrslitin réðust í seinni hálfleik.
Á 66. mínútu, þegar staðan var 2:2, barst boltinn til Sævars Atla í teignum. Hann tók skot sem fór af varnarmanni og hafnaði í netinu. Það reyndist sigurmark leiksins og færði Brann þrjú mikilvæg stig í toppbaráttunni. Hægt er að sjá markið á vef TV2 í Noregi.
Þegar lítið var eftir af leiknum var Sævar tekinn af velli en Eggert Aron Guðmundsson lék fyrstu 59 mínútunar fyrir Brann.
Brann, sem leikur undir stjórn Freys Alexanderssonar, heldur þannig áfram að fylgja toppliðunum fast eftir og mætir næst Mjøndalen í bikarkeppninni á miðvikudaginn kemur.
Davíð Snær Jóhannsson kom inn á sem varamaður á 65. mínútu þegar Álasund hafði betur gegn Raufoss, 1:0, í norsku B-deildinni. Í sömu deild lék Hinrik Harðarson síðustu mínúturnar fyrir Odd sem tapaði 2:1 fyrir Hodd.