Arnór Ingvi Traustason skoraði jöfnunarmarkið þegar Norrköping gerði 1:1 jafntefli við Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Heimamenn í Halmstad komust yfir með marki úr vítaspyrnu á 30. mínútu og leiddu 1:0 í hálfleik. Arnór Ingvi jafnaði metin snemma í seinni hálfleik, á 52. mínútu, þegar hann náði að koma boltanum í netið af stuttu færi. Markið má sjá neðst í fréttinni.
Arnór Ingvi lék allan leikinn fyrir Norrköping líkt og Ísak Andri Sigurgeirsson. Jónatan Guðni Arnarsson kom inn á undir lok leiksins. Hjá Halmstad var Gísli Eyjólfsson í byrjunarliði og spilaði allar mínútur.
Eftir jafnteflið er Norrköping í 11. sæti með 26 stig, fjórum stigum fyrir ofan Halmstad sem er í 13. sæti með 22 stig.