Fyrsta mark Sveindísar dugði ekki til – Myndband

Sveindís Jane skoraði sitt fyrsta mark í Bandaríkjunum.
Ljósmynd/Angel City

Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði í fyrsta sinn fyrir Angel City í bandarísku NWSL-deildinni í dag, en mark hennar dugði þó ekki til sigurs þegar liðið tapaði 2:1 gegn North Carolina Courage á útivelli.

Markið kom á 88. mínútu leiksins þegar Sveindís minnkaði muninn fyrir gestina. Það reyndist hins vegar of seint. Angel City er eftir leikinn í 11. sæti deildarinnar með 23 stig eftir 20 umferðir.

Mark Sveindísar í leiknum er hér að neðan.

Fyrri frétt

Arnór bjargaði stigi – Myndband

Næsta frétt

Hjörtur stóð vaktina í fyrsta sigrinum