Hjörtur stóð vaktina í fyrsta sigrinum

Hjörtur og samherjar hans í Volos fögnuðu sínum fyrsta sigri í grísku úrvalsdeildinni.
Ljósmynd/Volos

Lið Hjartar Hermannssonar, Volos, fagnaði sínum fyrsta sigri á tímabilinu í grísku úrvalsdeildinni í kvöld með 2:1-útisigri á Panetolikos í þriðju umferð deildarinnar.

Hjörtur var á sínum stað í vörninni og lék allan leikinn, líkt og í fyrstu tveimur umferðum tímabilsins.

Með sigrinum er Volos loks komið á blað í deildinni og hefur nú tryggt sér sín fyrstu stig á tímabilinu. Volos endaði í 11. sæti af 14 liðum á síðustu leiktíð og rétt slapp við fall.

Fyrr í dag var Guðlaugur Victor Pálsson í hjarta varnarinnar hjá Horsens sem tapaði 1:0 fyrir Koge í dönsku B-deildinni. Í sömu deild lék Jóhannes Kristinn Bjarnason síðasta korterið fyrir Kolding í 1:0 tapi gegn Hvidovre. Ari Leifsson var ónotaður varamaður hjá Kolding.

Fyrri frétt

Fyrsta mark Sveindísar dugði ekki til – Myndband

Næsta frétt

Kristian lagði upp í jafntefli – Myndband