Kristian Nökkvi Hlynsson var áberandi í leik Twente í hollensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar liðið gerði 2:2 jafntefli við NAC Breda á heimavelli.
Kristian var í byrjunarliði Twente sem lenti undir strax á þriðju mínútu. Hann átti síðan stóran þátt í jöfnunarmarki liðsins á 64. mínútu þegar hann lagði upp fyrir Marko Pjaca.
Kristian fór af velli á 75. mínútu, en Twente virtist hafa tryggt sér sigur með marki úr vítaspyrnu á 87. mínútu en Breda jafnaði þó í uppbótatíma og jafntefli varð niðurstaðan.
Twente hefur aðeins safnað fjórum stigum eftir fyrstu fimm umferðirnar og situr í 14. sæti deildarinnar.