Mikael átti stórleik í grannaslagnum

Mikael Neville átti afar góðan leik með Djurgården í grannaslag í Svíþjóð.
Ljósmynd/Djurgården

Mikael Neville Anderson, leikmaður Djurgården, lék stórt hlutverk í dramatísku 3:3 jafntefli liðsins gegn Hammarby í grannaslag í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Hann gagnrýndi dómarann harðlega í hálfleik eftir umdeilt gult spjald, en átti jafnframt stoðsendingu í seinni hálfleik og fékk góða umsögn frá fjölmiðlum að leik loknum.

Mikael fékk gult spjald eftir einvígi við andstæðing í fyrri hálfleik og var ekki sáttur með ákvörðun dómarans. „Við þurfum að tala um dómarann. Það var sjokkerandi þegar hann gaf mér gult spjald í þessari stöðu. Þetta er virkilega lélegt,“ sagði hann í viðtali við HBO Max í hálfleik, þegar staðan var 2:1 fyrir Hammarby.

Þrátt fyrir að spjaldið þýði að hann verði í banni gegn Malmö í næstu umferð, lét hann það ekki á sig fá í seinni hálfleik. Hornspyrna hans skilaði jöfnunarmarki skömmu eftir leikhlé, áður en dramatíkin náði hámarki í uppbótartíma þegar heimamenn í Djurgården tryggðu sér stigið með marki í blálokin.

Sænski fjölmiðillinn Fotbollskanalen valdi Mikael besta leikmann Djurgården og gaf honum fjóra af fimm mögulegum í einkunn. „Alltaf ógn gegn Hammarby, mjög virkur, öruggur með boltann og drífandi leikmaður,“ kemur fram í umsögninni.

Djurgården er með 35 stig eftir 23 umferðir og situr í áttunda sæti deildarinnar.

Fyrri frétt

Kristian lagði upp í jafntefli – Myndband

Næsta frétt

Hlín í sigurliði gegn Liverpool