Andri Lucas þreytti frum­raun sína á Englandi

Andri Lucas lék sinn fyrsta leik fyrir Blackburn á Englandi í sigri gegn Watford.
Ljósmynd/Blackburn

Andri Lucas Guðjohnsen lék sinn fyrsta leik fyrir Blackburn Rovers í dag þegar liðið vann 1:0-útisigur á Watford í ensku B-deildinni.

Andri, sem gekk nýverið til liðs við Blackburn frá belgíska liðinu Gent, fékk tækifæri í síðari hálfleik og spilaði rúmlega tuttugu mínútur.

Þetta var kærkominn sigur fyrir Blackburn sem er nú með sex stig eftir fimm leiki og situr í 15. sæti deildarinnar.

Embed from Getty Images

Íslendingaliðið Birmingham City tapaði 1:0 gegn Stoke á heimavelli. Willum Þór Willumsson var ekki með vegna meiðsla og Alfons Sampsted var utan leikmannahópsins.

Fyrr í dag gerðu Preston North End og Middlesbrough 2:2 jafntefli. Stefán Teitur Þórðarson var í hópnum hjá Preston en sat allan leikinn á varamannabekknum.

Benoný Breki Andrésson var í byrjunarliði Stockport County sem gerði 1:1 jafntefli við Cardiff í ensku C-deildinni. Hann lék 73 mínútur áður en hann var tekinn af velli.

Fyrri frétt

Andri besti maður vall­ar­ins í fyrsta sigr­in­um

Næsta frétt

Tómas kom við sögu í frábærum útisigri gegn Rangers