Andri besti maður vall­ar­ins í fyrsta sigr­in­um

Andri Fannar lék vel í fyrsta sigri Kasımpaşa á leiktíðinni.
Ljósmynd/Kasımpaşa

Andri Fannar Baldursson átti góðan leik þegar lið hans Kasımpaşa vann Fatih Karagümrük 1:0 á útivelli í tyrknesku úrvalsdeildinni í dag.

Andri Fannar spilaði allan leikinn sem afturliggjandi miðjumaður og fékk hæstu einkunn allra leikmanna hjá SofaScore. Þetta var fyrsti sigur Kasımpaşa á leiktíðinni og liðið er því komið á blað eftir að hafa tapað fyrstu þremur leikjunum.

Logi Tómasson lék stærst­an hluta leiks­ins fyrir Samsunspor sem tapaði 2:1 fyrir Antalyaspor. Hann spilaði fyrstu 85 mínúturnar í leiknum. Samsunspor er í 7. sæti með sjö stig.

Fyrri frétt

Inn­koma Ísaks skipti sköp­um

Næsta frétt

Andri Lucas þreytti frum­raun sína á Englandi