Þó nokkrir með góða leiki

Fjölmargir voru í eldlínunni í dag.
Ljósmynd/Twente

Það sem af er degi hafa íslenskir atvinnumenn í knattspyrnu verið áberandi og skilað góðum frammistöðum.

Kristian Nökkvi Hlynsson spilaði allan leikinn með Twente sem vann 2:1 útisigur á Heerenveen í hollensku úrvalsdeildinni. Hann átti beinan þátt í seinna marki liðsins á 84. mínútu þegar hann skaut að marki sem markvörðurinn varði en samherji hans fylgdi á eftir og skoraði úr frákastinu.

Kristian var einn besti leikmaður vallarins samkvæmt FotMob og fékk 7,8 í einkunn. Með þessum sigri fékk Twente sín fyrstu stig á leiktíðinni og situr nú með þrjú stig eftir þrjár umferðir.

Jón Dagur Þorsteinsson átti góðan leik með Hertha Berlin í markalausu jafntefli gegn Darmstadt í þýsku B-deildinni. Hann var metinn besti leikmaður Hertha með einkunnina 7,8. Liðið hefur þó ekki unnið leik og er í næstneðsta sæti með tvö stig. Brynjar Ingi Bjarnason kom einnig við sögu í sömu deild þegar hann spilaði seinni hálfleikinn með Greuther Fürth sem tapaði 2:0 fyrir Holstein Kiel. Greuther er í 13. sæti með þrjú stig.

Mikael Neville Anderson átti fínan leik fyrir Djurgården sem vann 1:0 sigur á Brommapojkarna í sænsku úrvalsdeildinni, en Hlynur Freyr Karlsson sat allan tímann á bekknum hjá Brommapojkarna. Djurgården er í 8. sæti með 31 stig á meðan Brommapojkarna er í 9. sæti með 23 stig.

Elías Rafn Ólafsson, markvörður Midtjylland, varð fyrir óláni í 4:2 sigri liðsins á Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni. Hann setti boltann í eigið net í fyrri hálfleik þegar fyrirgjöf fór af honum og í markið. Atvikið hafði þó ekki úrslitaáhrif því Midtjylland sneri taflinu sér í hag og situr nú í 2. sæti deildarinnar með 12 stig.

Davíð Kristján Ólafsson lék frá upphafi með Cracovia í pólsku úrvalsdeildinni í markalausu jafntefli gegn Piast Gliwice. Cracovia er í 3. sæti með 11 stig eftir fimm leiki.

Þá lék Dagur Dan Þórhallsson fyrstu 74 mínútunar með Orlando City sem steinlá gegn Nashville, 5:1, í MLS-deildinni í nótt.

Fyrri frétt

Guðlaugur Victor riftir við Plymouth – Á leið til Horsens

Næsta frétt

Elías lagði upp jöfnunarmarkið – Myndband