Guðlaugur Victor Pálsson hefur fengið samningi sínum við Plymouth Argyle rift, að því er kemur fram á heimasíðu félagsins í dag.
Í tilkynningunni kemur fram að ákvörðunin væri tekin af persónulegum ástæðum og að Guðlaugur Victor væri á leið í nýtt verkefni utan Englands. Hann lék 31 leik fyrir Plymouth eftir komu sína á síðasta ári og var fyrirliði liðsins í upphafi þessa tímabils.
Í kveðjuorðum sínum þakkaði hann stuðningsmönnum fyrir stuðninginn og sagði dvölina hafa verið stutta og ekki þróast eins og vonast var til, en kvaðst þakklátur fyrir reynsluna og óskaði félaginu velfarnaðar.
Samkvæmt Tipsbladet í Danmörku hefur Guðlaugur Victor náð samkomulagi við AC Horsens í dönsku B-deildinni. Hann hefur þegar staðist læknisskoðun og samþykkt tveggja ára samning, en liðið á enn eftir að kynna hann formlega. Horsens er sem stendur í efsta sæti deildarinnar og setur stefnuna á sæti í úrvalsdeild á næsta tímabili.
Guðlaugur Victor er ekki ókunnugur danska boltanum, þar sem hann lék bæði með AGF og Esbjerg. Snýr hann nú aftur á gamlar slóðir með mikla reynslu í farteskinu.