Brynjólfur með laglegt mark gegn toppliðinu – Myndband

Brynjólfur Darri skoraði laglegt mark gegn toppliðinu í Hollandi.
Ljósmynd/Groningen

Brynjólfur Darri Willumsson hélt áfram að láta að sér kveða í hollensku úrvalsdeildinni þegar lið hans Groningen sótti PSV heim í gær. Hann skoraði í fyrri hálfleik í leik sem endaði með 4:2 sigri heimamanna.

PSV komst yfir snemma leiks en Brynjólfur jafnaði metin með laglegu skoti úr teignum rétt fyrir leikhlé. Í seinni hálfleik sýndi toppliðið þó styrk sinn, skoraði þrjú mörk og komst í 4:1 áður en Groningen minnkaði munin í lokin.

Brynjólfur lék allan leikinn og hefur nú skorað þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum, þar af tvö í síðustu umferð. Groningen situr með þrjú stig í 11. sæti deildarinnar eftir þrjár umferðir, en PSV er á toppnum með fullt hús stiga.

Mark Brynjólfs:

Fyrri frétt

Davíð skoraði fyrir Álasund – Myndband

Næsta frétt

Guðlaugur Victor riftir við Plymouth – Á leið til Horsens