Elías Már Ómarsson átti góðan leik með Meizhou Hakka í kínversku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið gerði 2:2 jafntefli við Zhejiang Professional.
Meizhou komst yfir með marki úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks, en gestirnir jöfnuðu fljótt og bættu við öðru marki í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Staðan var því 2:1 í hálfleik.
Elías, sem lék allan leikinn í fremstu víglínu, átti svo stoðsendingu á 56. mínútu þegar hann lagði upp jöfnunarmarkið, sem má sjá hér að neðan.
Meizhou Hakka er nú í 13. sæti deildarinnar með 17 stig, aðeins tveimur stigum frá fallsæti.