Skoraði í langþráðum sigri Linköping

María Catharína skoraði fyrsta mark Linköping.
Ljósmynd/Instagram/@mariiagros

María Catharína Ólafsdóttir Gros skoraði fyrsta mark Linköping þegar liðið vann 3:0 sigur á Vittsjö í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var aðeins annar sigur liðsins á tímabilinu og sá fyrsti í fjóra mánuði.

María kom Linköping yfir á 33. mínútu og fyrir hálfleik höfðu heimakonur tvöfaldað forystuna. Þriðja markið kom á 76. mínútu og var sigurinn því öruggur í þetta sinn. María lék allan leikinn og stýrði leik liðsins á miðsvæðinu.

Linköping er þó enn í fallsæti deildarinnar, nú með átta stig eftir fimmtán umferðir, en er komið upp úr neðsta sætinu. Liðið þarf þó að minnka fimm stiga forskot Brommapojkarna í öruggt sæti og á ellefu leiki til þess.

Fyrri frétt

Elías lagði upp jöfnunarmarkið – Myndband

Næsta frétt

Daníel maður leiks­ins og skoraði – Sláin inn hjá Júlíusi