Daníel Leó Grétarsson skoraði fyrra mark Sønderjyske í góðum 2:0 sigri liðsins á Brøndby á heimavelli í dönsku úrvalsdeildinni í dag.
Daníel Leó var í byrjunarliði Sønderjyske og skoraði í byrjun seinni hálfleiks þegar hann átti gott skot á markið. Hann var tekinn af velli á 79. mínútu og var valinn maður leiksins eftir frábæra frammistöðu. Kristall Máni Ingason lék fyrstu 70 mínúturnar fyrir Sønderjyske.
Þetta var annar sigur Sønderjyske á leiktíðinni og liðið er nú með 7 stig eftir fyrstu sex umferðirnar.
Júlíus skoraði laglegt mark í tapi
Julíus Magnússon var á skotskónum þegar lið hans Elfsborg beið lægri hlut gegn Halmstads, 2:1, í sænsku úrvalsdeildinni.
Markið sem Júlíus skoraði var einkar laglegt þegar hann smellti boltanum í þverslána og í netið um miðbik seinni hálfleiks. Hann lék allan leikinn og Ari Sigurpálsson spilaði fyrri hálfleikinn fyrir Elfsborg. Gísli Eyjólfsson var í byrjunarliði Halmstads og var tekinn af velli í hálfleik.
Sigurinn var mikilvægur fyrir Halmstads sem er í 13. sæti með 21 stig, aðeins þremur stigum frá fallumspilssæti. Elfsborg er í 5. sæti með 36 stig.
Þá skildu Íslendingaliðin Malmö og Gautaborg jöfn í markalausum leik. Kolbeinn Þórðarson lék allan leikinn fyrir Gautaborg og þeir Arnór Sigurðsson og Daníel Tristan Guðjohnsen komu inn á sem varamenn hjá Malmö.
Malmö er með 37 stig í þriðja sæti á meðan Gautaborg er í 7. sæti með 35 stig eftir 21 leiki.