Hákon Rafn Valdimarsson, markvörður Brentford, átti minnisstætt kvöld þegar liðið sló Aston Villa úr leik í enska deildabikarnum. Hann fékk högg fyrir ofan augað í fyrri hálfleik og þurfti aðhlynningu áður en hann gat haldið leik áfram.
Stuttu síðar gerði hann sig sekan um mistök þegar Harvey Elliott skaut lausu skoti sem fór í gegnum hann og í netið. „Ég var smá hræddur að linsurnar mínar hefðu dottið út en augað er í lagi,“ sagði Hákon í viðtali við Sky Sports. „Ég hefði líklega átt að verja skotið þeirra. En svona gerist. Þetta er samt frábær sigur og ég er mjög ánægður.“
Sjá einnig: Hákon Rafn hetja Brentford í vítaspyrnukeppni – Myndband
Í vítaspyrnukeppninni varði hann svo bæði frá John McGinn og Matty Cash og tryggði Brentford 4:2 sigur. „Þegar ég varði fyrstu spyrnuna vissi ég að við myndum vinna þetta,“ bætti hann við.
Keith Andrews, þjálfari Brentford, stóð þétt við bakið á markverði sínum. „Mistök gerast alltaf í fótbolta og ég sagði það við leikmenn í hálfleik. Það sem skiptir mestu eru viðbrögðin. Hákon sýndi mikinn styrk og tvær frábærar vörslur í vítaspyrnukeppninni tryggðu okkur áfram,“ sagði hann.