Hákon Rafn hetja Brentford í vítaspyrnukeppni – Myndband

Hákon Rafn reyndist hetja Brentford í vítaspyrnukeppni í enska deildabikarnum.
Ljósmynd/Brentford

Hákon Rafn Valdimarsson varð hetja Brentford í kvöld þegar liðið sló Aston Villa úr leik í 3. umferð enska deildabikarsins eftir vítaspyrnukeppni.

Aston Villa komst yfir undir lok fyrri hálfleiks þegar Harvey Elliott skaut að marki. Boltinn fór beint á Hákon Rafn en íslenski landsliðsmarkvörðurinn missti hann klaufalega í gegnum sig og í netið. Brentford jafnaði hins vegar í seinni hálfleik með marki frá Aaron Hickey og stóðu leikar 1:1 að loknum venjulegum leiktíma.

Í vítaspyrnukeppninni steig Hákon Rafn fram og sýndi hvað í honum býr. Hann varði strax fyrstu spyrnuna frá John McGinn og síðar fjórðu spyrnu Aston Villa frá Matty Cash. Brentford skoraði úr öllum sínum fjórum spyrnum og vann því vítaspyrnukeppnina 4:2, en svipmyndir úr henni má sjá hér að neðan.

Fyrri frétt

Mikael hrósað í hástert – „Einstakur fagmaður“

Næsta frétt

„Þegar ég varði fyrstu spyrnuna vissi ég að við myndum vinna“