Kristall skoraði sigurmarkið

Kristall Máni reyndist hetja Sønderjyske í dönsku bikarkeppninni.
Ljósmynd/Sønderjyske

Kristall Máni Ingason reyndist hetja Sønderjyske í dönsku bikarkeppninni í gærkvöld. Hann kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmarkið í 2:1-sigri liðsins á útivelli gegn Hvidovre í 32-liða úrslitum.

Á 68. mínútu fékk hann boltann í teignum og kláraði af öryggi úr þröngu færi. Það mark reyndist úrslitamark leiksins og tryggði Sønderjyske sæti í 16-liða úrslitum keppninnar. Markið má sjá á vef dönsku bikarkeppninnar.

Rúnar Þór Sigurgeirsson lék allan leikinn fyrir Sønderjyske, en Daníel Leó Grétarsson var ekki í leikmannahópnum að þessu sinni.

Fyrri frétt

„Þegar ég varði fyrstu spyrnuna vissi ég að við myndum vinna“

Næsta frétt

Fékk strax traustið hjá nýjum stjóra