Sverrir Ingi traustur í vörninni

Sverrir Ingi var traustur í vörn Panathinaikos í sigri liðsins í Evrópudeildinni.
Ljósmynd/Panathinaikos

Sverrir Ingi Ingason var traustur í vörn Panathinaikos þegar liðið vann öruggan 4:1-sigur á Young Boys í Evrópudeildinni í kvöld. Hann lék af yfirvegun, var sterkur í teignum og hélt skipulagi í varnarlínunni allan leikinn.

Gríski fjölmiðilinn SDNA hrósaði Sverri eftir leikinn og benti á að hann hefði verið öruggari en varnarmaðurinn við hlið hans. Þar var jafnframt tekið fram að Sverrir hafi verið áberandi í eigin teig og veitt liðinu mikinn stöðugleika í varnarleiknum.

Panathinaikos gerði út um leikinn með þremur mörkum á skömmum tíma í fyrri hálfleik og Anass Zaroury fór á kostum með því að skora þrennu fyrir liðið.

Fyrri frétt

„Hákon er einn af okkar leiðtogum“

Næsta frétt

Bikartöp og erfitt gengi á Ítalíu