„Hákon er einn af okkar leiðtogum“

„Hákon er einn af okkar leiðtogum og við höfum fulla trú á honum,“ sagði þjálfari Lille.
Ljósmynd/Lille

Bruno Génésio, þjálfari Lille, talaði um Hákon Arnar Haraldsson á blaðamannafundi eftir 2:1-sigur liðsins á Brann í Evrópudeildinni í kvöld.

Hákon hefur verið að jafna sig eftir meiðsli og missti af leik gegn Toulouse um miðjan mánuð. „Hann er orðinn heill en meiðslin hafa líklega hægt aðeins á honum,“ sagði Génésio. „Andlega hefur þetta einnig verið erfitt. Í síðasta leik fékk hann gott tækifæri sem hann nýtti ekki og það hafði mikil áhrif á hann. Í kvöld fór hann aftur út af mjög svekktur.“

Génésio undirstrikaði að liðið hefði fulla trú á Hákoni. „Við dæmum hann ekki eftir staka leiki. Við vitum nákvæmlega hversu mikilvægur hann er fyrir liðið og hvað hann getur gefið því í framtíðinni,“ sagði hann.

Génésio sagðist sjálfur bera hluta af ábyrgðinni. „Kannski var það ekki skynsamlegt að stilla honum upp aftar á vellinum. Við þær aðstæður fékk hann ekki tækifæri til að njóta sín til fulls,“ sagði hann.

Að lokum tók hann af allan vafa um stöðu íslenska landsliðsmannsins innan liðsins. „Hákon er einn af okkar leiðtogum og við höfum fulla trú á honum. Það er einmitt ástæðan fyrir því að hann bar fyrirliðabandið í kvöld. Það var annað hvort hann eða Nabil Bentaleb, en Hákon hefur nýlega gegnt því hlutverki með Íslandi,“ sagði Génésio.

Fyrri frétt

Stöngin inn hjá Sævari – Myndband

Næsta frétt

Sverrir Ingi traustur í vörninni