Stöngin inn hjá Sævari – Myndband

Sævar Atli heldur áfram að skora fyrir Brann.
Ljósmynd/Brann

Sævar Atli Magnússon skoraði sitt fyrsta mark í deildarkeppni Evrópudeildarinnar þegar Brann mætti Lille í Frakklandi í kvöld.

Eftir markalausan fyrri hálfleik komust heimamenn yfir snemma í seinni hálfleik. Stuttu síðar jafnaði Sævar Atli með snyrtilegu skoti í fjærhornið sem fór í stöngina og inn. Markið má sjá hérna.

Sævar Atli hefur nú skorað 9 mörk í fyrstu 13 leikjum sínum fyrir Brann.

Olivier Giroud, markahæsti leikmaður í sögu franska landsliðsins, tryggði Lille sigurinn með skalla þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum.

Þrátt fyrir góð færi í lokin tókst Brann ekki að jafna og leiknum lauk með 2:1-sigri Lille. Hákon Arnar Haraldsson bar fyrirliðabandið hjá Lille og lék í 87 mínútur. Sævar Atli lék í jafnmargar mínutur fyrir Brann og Eggert Aron Guðmundsson kom inn af bekknum á 55. mínútu. Freyr Alexandersson stýrir Brann.

Fyrri frétt

Dramatískur sigur hjá Aroni - Stórsigur hjá Söru

Næsta frétt

„Hákon er einn af okkar leiðtogum“