Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með Al-Gharafa sem vann dramatískan 3:2-sigur á Al-Wakrah í katörsku úrvalsdeildinni í dag. Sigurmarkið kom í uppbótartíma í seinni hálfleik og tryggði liði Arons mikilvæg þrjú stig.
Með sigrinum er Al-Gharafa komið í 3. sæti deildarinnar af tólf liðum eftir sex umferðir.
Sara Björk Gunnarsdóttir lék einnig allan leikinn fyrir Al Qadsiah í Sádi-Arabíu þegar liðið vann 5:0-stórsigur á Al Ula. Þetta voru fyrstu stig Al Qadsiah á tímabilinu eftir þrjár umferðir.