Bestu leikmenn Íslands í nýja tölvuleiknum

Glódís Perla fær hæstu einkunn íslenskra leikmanna í nýjustu útgáfu EA FC.
Ljósmynd/Samsett

Búið er að opinbera einkunnir leikmanna í nýjustu útgáfu tölvuleiksins EA FC sem kemur út á morgun. Glódís Perla Viggósdóttir er þar hæst metin af íslensku leikmönnunum með 84 í heildareinkunn.

Sveindís Jane Jónsdóttir er næst með 80. Albert Guðmundsson er efstur karla með 79 og Hákon Arnar Haraldsson fylgir honum fast á eftir með 78.

Einkunnirnar ráðast af þáttum eins og hraða, skotum, sendingum og varnartækni og endurspegla þannig heildarmat á frammistöðu leikmannanna.

15 bestu leikmenn Íslands í EA FC26:

Glódís Perla Viggósdóttir – 84

Sveindís Jane Jónsdóttir – 80

Albert Guðmundsson – 79

Hákon Arnar Haraldsson – 78

Sverrir Ingi Ingason – 75

Orri Steinn Óskarsson – 74

Guðrún Arnardóttir – 74

Ísak Bergmann Jóhannesson – 73

Hildur Antonsdóttir – 73

Ingibjörg Sigurðardóttir – 72

Mikael Neville Anderson – 71

Emilía Ásgeirsdóttir – 71

Willum Þór Willumsson – 70

Alfons Sampsted – 70

Elías Rafn Ólafsson – 70

Nánari upplýsingar og einkunnir allra íslenskra leikmanna í EA FC 26 má finna á vef EA Sports.

Fyrri frétt

Mörkin tvö hjá Söndru – Myndband

Næsta frétt

Dramatískur sigur hjá Aroni - Stórsigur hjá Söru