Sandra María Jessen var hetja Köln þegar hún skoraði bæði mörk liðsins í 2:1-sigri á Essen í þýsku úrvalsdeildinni í gær. Hún gerði þau á aðeins þriggja mínútna kafla í fyrri hálfleik og voru þetta fyrstu mörk hennar fyrir liðið eftir komu hennar frá Þór/KA í sumar.
Sérstaklega vakti seinna markið athygli, en þar lék hún á varnarmann og vippaði boltanum snyrtilega yfir markvörð Essen. Hér að neðan má sjá mörkin tvö hjá Söndru (prófaðu að endurhlaða síðuna ef það birtist ekki).
Með sigrinum, þeim fyrsta á tímabilinu, hefur Köln þrjú stig eftir fjóra leiki.
View this post on Instagram