Albert klár í granna­slag­inn

Albert verður til taks þegar Fiorentina mætir Pisa í grannaslag í ítölsku A-deildinni.
Ljósmynd/Fiorentina

Albert Guðmundsson er orðinn leikfær á ný með Fiorentina eftir ökklameiðsli. Hann verður til taks þegar liðið mætir Pisa í grannaslag í ítölsku A-deildinni á sunnudag. Frá þessu er greint í ítölskum fjölmiðlum í dag.

Albert var ekki með í síðustu tveimur leikjum Fiorentina. Hann hafði þó áður leikið í fyrstu fjórum leikjum liðsins á tímabilinu, þar á meðal í tveimur fyrstu umferðunum í ítölsku A-deildinni og í báðum leikjum gegn Polissya í undankeppni Sambandsdeildarinnar. Þar skoraði hann sitt fyrsta mark á leiktíðinni.

Viðureignin við Pisa verður sérstök þar sem Albert mætir Alberto Gilardino, fyrrum þjálfara sínum. Gilardino stýrði Genoa þegar Albert lék þar og þekkir vel til hans.

Leikurinn fer fram á Arena Garibaldi-leikvanginum í Pisa og er liður í 5. umferð ítölsku A-deildarinnar. Fiorentina er í 17. sæti með aðeins tvö stig.

Fyrri frétt

Er enn með símanúmerið hjá Dembélé

Næsta frétt

Mörkin tvö hjá Söndru – Myndband