Er enn með símanúmerið hjá Dembélé

Arnór er enn í sambandi við Ousmane Dembélé, besta leikmann heims.
Ljósmynd/Malmö

Arnór Sigurðsson, leikmaður Malmö FF í Svíþjóð, er enn í sambandi við franska landsliðsmanninn Ousmane Dembélé sem í vikunni hlaut Ballon d’Or-verðlaunin sem besti knattspyrnumaður heims.

Þetta hefur áður vakið athygli, en í viðtali við sænska dagblaðið Sportbladet rifjaði Arnór upp hvernig vináttan hófst. „Þetta var þegar ég var í Rússlandi. Hann byrjaði að fylgja mér á Instagram þegar ég var hjá CSKA Moskvu og hann hjá Barcelona. Við fórum að spjalla aðeins og spiluðum líka tölvuleiki saman. Þetta kom eiginlega upp úr þurru,“ sagði hann.

Arnór lagði þó áherslu á að sambandið væri ekki mjög persónulegt. „Það hefur gengið mjög vel hjá honum og gaman að fylgjast með, en það er ekki þannig að við séum nánir vinir,“ sagði hann.

Hann hló þegar hann var spurður hvort þeir tækju sumarfrí saman líkt og vinirnir Erling Haaland og Erik Botheim. „Nei, alls ekki,“ sagði hann og brosti.

Arnór er þessa dagana frá keppni vegna meiðsla í læri en vinnur að því að snúa sem fyrst aftur á völlinn með Malmö.

Fyrri frétt

Elías Rafn lokaði markinu í Evrópudeildinni

Næsta frétt

Albert klár í granna­slag­inn