Bikartöp og erfitt gengi á Ítalíu

Íslendingar komu við sögu í leikjum í Noregi, Danmörku og á Ítalíu í dag.
Ljósmynd/Triestina

Hinrik Harðarson lék sem varamaður með Odd í norska bikarnum í dag þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Bodö/Glimt, 3:1.

Í Danmörku tók Jóhannes Kristinn Bjarnason þátt í öllum leiknum fyrir Kolding í bikarviðureign gegn Nordsjælland sem endaði með 2:0-tapi. Ari Leifsson var ekki í leikmannahópi Kolding í þeim leik.

Kristófer Jónsson var í byrjunarliði Triestina sem mætti U23-liði Inter í ítölsku C-deildinni. Triestina tapaði 2:0 en liðið glímir við mikla fjárhagsörðugleika og hefur sætt tuttugu stiga frádrætti. Því situr liðið nú með 12 stig í mínus.

Fyrri frétt

Sverrir Ingi traustur í vörninni

Næsta frétt

Elías og Meizhou Hakka í slæmri stöðu