Elías og Meizhou Hakka í slæmri stöðu

Elías Már og samherjar hans í Meizhou Hakka eru á botninum í kínversku úrvalsdeildinni.
Ljósmynd/y.meizhou.cn

Elías Már Ómarsson lék allan leikinn þegar Meizhou Hakka tapaði 6:1 gegn Shanghai Shenhua í kínversku úrvalsdeildinni í dag.

Elías átti fínan leik þrátt fyrir stórt tap en hann hefur leikið níu leiki fyrir Meizhou síðan hann gekk í raðir liðsins í sumar. Hann hefur skorað tvö mörk og lagt upp tvö til viðbótar.

Það hefur þó gengið illa hjá Meizhou Hakka, sem situr á botni deildarinnar með 17 stig þegar fimm umferðir eru eftir. Liðið hefur aðeins unnið einn leik síðan Elías gekk til liðs við það, en næstu tvö liðin fyrir ofan eru einnig með 17 stig og baráttan því hörð um að halda sæti í deildinni.

Jóhann Berg Guðmundsson lék frá upphafi til enda þegar lið hans Al-Dhafra hafði betur gegn Al Bataeh, 3:1, í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Al-Dhafra leikur þar í efstu deild og er um miðja deild eftir fyrstu fimm umferðirnar.

Þá var Brynjar Ingi Bjarnason í byrjunarliði Greuther Fürth sem tapaði 1:0 fyrir Schalke í þýsku B-deildinni. Brynjar var í miðri vörninni hjá Greuther Fürth og var tekinn af velli eftir rúmlega klukkutíma leik. Greuther Fürth er í 10. sæti eftir sjö umferðir.

Fyrri frétt

Bikartöp og erfitt gengi á Ítalíu

Næsta frétt

Ragnheiður Þórunn til Zwolle