Ragnheiður Þórunn til Zwolle

Ragnheiður Þórunn hefur gengið til liðs við PEC Zwolle að láni út þetta tímabil.
Ljósmynd/Zwolle

Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir, 17 ára leikmaður Vals, hefur gengið til liðs við PEC Zwolle í hollensku úrvalsdeildinni að láni út þetta tímabil.

Ragnheiður hefur verið áberandi hjá Val á leiktíðinni, þar sem hún skoraði fimm mörk í Bestu deildinni og eitt í bikarkeppninni. Hún er uppalin hjá Haukum og samdi við Val fyrir síðasta tímabil en framlengdi nýlega samning sinn við liðið til ársins 2027. Alls hefur hún skorað níu mörk í 37 leikjum í Bestu deildinni.

„Mitt fyrsta ævintýri utan Íslands er afar sérstakt,“ sagði Ragnheiður í viðtali við heimasíðu Zwolle. „Ég hlakka til að þróast áfram í sterku umhverfi og tel Zwolle vera góðan stað til að taka næstu skref.“

PEC Zwolle hefur þrjú stig eftir fyrstu tvo leiki tímabilsins en endaði í 10. sæti í fyrra. Liðið mætir meisturunum í Twente á sunnudag.

Fyrri frétt

Elías og Meizhou Hakka í slæmri stöðu

Næsta frétt

AB fór á toppinn