Sterk byrjun hjá Íslendingaliðunum

Íslendingaliðin í ensku B-deildinni hafa byrjað tímabilið af krafti.
Ljósmynd/Birmingham

Íslendingaliðin í ensku B-deildinni hafa byrjað tímabilið af krafti og bæði Birmingham City og Preston North End fögnuðu góðum úrslitum í gær.

Willum Þór Willumsson var í byrjunarliðinu og lék allan leikinn þegar Birmingham hafði betur gegn Oxford United, 1:0, á heimavelli. Alfons Sampsted fékk ekki tækifæri að þessu sinni.

Willum átti góðan leik og fékk 7 í einkunn hjá enska blaðinu The Football League Paper fyrir frammistöðu sína. Með sigrinum er Birmingham komið í 5. sæti með sjö stig eftir þrjár umferðir.

Stefán Teitur Þórðarson kom inn á í seinni hálfleik á 73. mínútu þegar lið hans Preston vann 1:0 heimasigur á Ipswich Town. Preston er einnig komið með sjö stig og situr í 6. sæti deildarinnar.

Fyrri frétt

Hafrún Rakel á skotskónum

Næsta frétt

Davíð skoraði fyrir Álasund – Myndband