Hafrún Rakel á skotskónum

Hafrún Rakel skoraði fyrir Bröndby.
Ljósmynd/Bröndby

Hafrún Rakel Halldórsdóttir skoraði í gær fyrir Bröndby í dönsku úrvalsdeildinni en það dugði ekki til sigurs. Bröndby tapaði 3:2 gegn toppliði HB Köge eftir dramatískar lokamínútur. Hafrún kom inn af bekknum og skoraði á 81. mínútu, en Köge jafnaði á 90. mínútu og tryggði sér svo sigur í uppbótartíma. Bröndby er með tvö stig eftir þrjár umferðir.

Í B-deildinni í Danmörku var Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir í byrjunarliði FC Kaupmannahafnar sem vann 1:0 sigur á Esbjerg. FC Kaupmannahöfn er með fjögur stig eftir tvo leiki og situr í 3. sæti deildarinnar.

Á Ítalíu lék Katla Tryggvadóttir sinn fyrsta leik frá upphafi fyrir Fiorentina, eftir að hafa gengið til liðs við liðið frá Kristianstad fyrr í mánuðinum. Katla var í byrjunarliðinu þegar Fiorentina vann Como, 2:0, í bikarkeppninni. Í sama riðli hafði Inter betur gegn Genoa, 2:1, þar sem Cecilía Rán Rúnarsdóttir var í markinu en Karólína Lea Vilhjálmsdóttir sat á varamannabekknum hjá Inter.

Fyrri frétt

Lagði aft­ur upp mark

Næsta frétt

Sterk byrjun hjá Íslendingaliðunum