Stefán og Willum léku í sigrum

Stefán Teitur og Willum Þór voru báðir í sigurliðum í ensku B-deildinni.
Ljósmynd/Preston

Stefán Teitur Þórðarson og Willum Þór Willumsson voru báðir í sigurliðum í ensku B-deildinni í dag.

Stefán Teitur kom inn á sem varamaður hjá Preston á 73. mínútu 2:1 sigri á heimavelli gegn Leicester City. Preston er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina í deildinni.

Willum Þór Willumsson lék síðustu mínúturnar fyrir Birmingham sem varamaður í 2:1-útisigri gegn Blackburn Rovers. Birmingham er með fjögur stig.

Guðlaugur Victor Pálsson lék fyrri hálfleikinn fyrir Plymouth sem beið lægri hlut fyrir Lincoln City, 3:2, í ensku C-deildinni. Plymouth er án stiga eftir þrjár umferðir.

Í deildabikranum í Skotlandi lék Tómas Bent Magnússon fyrri hálfleikinn fyrir Hearts, sem tapaði fyrir St. Mirren eftir vítaspyrnukeppni.

Í ítölsku bikarkeppninni lék Bjarki Steinn Bjarkason allan leikinn fyrir Venezia sem vann 4:0 stórsigur á Mantova í 64-liða úrslitum keppninnar.

Þá lék Elías Már Ómarsson allan leikinn í fremstu víglínu fyrir Meizhou Hakka í 1:0 tapi liðsins gegn Changchun Yatai í kínversku úrvalsdeildinni. Meizhou Hakka er í fallbaráttu og situr í 14. sæti af 16 liðum.

Fyrri frétt

Brann á toppinn

Næsta frétt

Logi fer vel af stað í Tyrklandi