Logi fer vel af stað í Tyrklandi

Logi fer vel af stað með nýja liði sínu Samsunspor í Tyrklandi.
Ljósmynd/Samsunspor

Logi Tómasson fer vel af stað með nýja liði sínu Samsunspor í Tyrklandi. Liðið vann góðan 1:0-útisgur gegn nýliðum Kocaelispor í tyrknesku úrvalsdeildinni í dag.

Logi lék allan leikinn í stöðu vinstri bakvarðar og átti mjög góðan leik. Í umfjöllun staðarmiðilsins Samsun Son Haber kemur fram að Logi hafi heillað stuðningsmenn í leiknum í dag með sterkri frammistöðu.

Logi, sem er 24 ára og kom frá norska úrvalsdeildarliðinu Strømsgodset í sumar, átti marga góða spretti og sýndi bæði öryggi og ákefð í sendingum sínum. Að mati miðilsins var hann einn af áberandi leikmönnum vallarins og meðal þeirra sem sköruðu fram úr í leiknum.

Samsunspor hefur unnið fyrstu tvo leiki sína í tyrknesku úrvalsdeildinni og er sem stendur í 2. sæti. Næsti leikur liðsins er gegn Panathinaikos í umspili um Evrópudeildarsæti.

Fyrri frétt

Stefán og Willum léku í sigrum

Næsta frétt

Brynjólfur sá um Heerenveen – Sjáðu mörkin