Brynjólfur Willumsson reyndist hetja Groningen er hann skoraði bæði mörk liðsins í 2:1 sigri gegn Heerenveen í hollensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Heerenveen komst yfir með marki á 15. mínútu en Brynjólfur jafnaði metin í 1:1 á 28. mínútu með skoti fyrir utan teig.
Það virtist allt stefna í jafntefli þegar Brynjólfur skoraði sigurmark leiksins í uppbótartíma þegar hann fékk boltann í vítateignum og afgreiddi færið örugglega. Hann reif sig úr treyjunni þegar hann fagnaði markinu og fékk gult spjald.
Groningen er nú með þrjú stig eftir fyrstu tvær umferðirnar í hollensku úrvalsdeildinni en liðið steinlá í fyrstu umferð gegn AZ Alkmaar.
Mörk Brynjólfs eru hér að neðan: