Orri kom við sögu gegn Valencia

Orri Steinn kom við sögu hjá Real Sociedad í leik gegn Valencia.
Ljósmynd@RealSociedadEN

Orri Steinn Óskarsson kom inn á sem varamaður hjá Real Sociedad á 68. mínútu í leik gegn Valencia á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Þá var staðan 1:1 eftir að Diego López hafði komið heimamönnum í Valencia yfir og Takefusa Kubo jafnað fljótlega síðar.

Orri fékk þannig rúman stundarfjórðung til að reyna að skora sigurmarkið fyrir gestina, en tókst ekki að brjóta niður vörn Valencia.

Í pólsku úrvalsdeildinni átti Gísli Gottskálk Þórðarson fínan leik með liði sínu Lech Poznan sem gerði 1:1 jafntefli við Korona Kielce. Gísli lék fyrstu 75 mínútunar á miðjunni hjá Lech Poznan, sem er í 7. sæti eftir fjóra leiki.

Fyrri frétt

Brynjólfur sá um Heerenveen – Sjáðu mörkin

Næsta frétt

Hákon skoraði í opnunarleiknum – Myndband