Hákon Arnar Haraldsson skoraði eitt marka Lille þegar liðið gerði 3:3 jafntefli gegn Brest í fyrstu umferð frönsku úrvalsdeildarinnar í dag.
Olivier Giroud, sem er nýkominn til Lille, sá um að opna markareikninginn á 11. mínútu áður en Hákon bætti við öðru marki liðsins með nákvæmu skoti í vinstra hornið eftir að hafa stolið boltanum af varnarmanni heimamanna. Markið má sjá hér að neðan.
Kamory Doumbia svaraði fyrir Brest með marki í fyrri hálfleik og jafnaði svo strax eftir hlé. Ngalayel Mukau kom Lille aftur yfir um miðbik seinni hálfleiks en Julien Le Cardinal tryggði heimamönnum stigið með jöfnunarmarki á 75. mínútu.
Hákon skipti á dögunum yfir í treyju númer 10 hjá Lille og skoraði sitt fyrsta mark í henni í þessum leik. Næsta verkefni liðsins er heimaleikur gegn Monaco næsta sunnudag.