Elías Rafn átti stórleik í marki Midtjylland

Elías Rafn átti frábæran leik í marki Midtjylland.
Ljósmynd/Midtjylland

Elías Rafn Ólafsson sýndi frábæra frammistöðu þegar Midtjylland lagði Vejle að velli, 2:0, í dönsku úrvalsdeildinni í dag.

Elías Rafn varði alls átta skot í leiknum og hefur nú haldið hreinu í tveimur síðustu leikjum liðsins. Fyrir frammistöðuna hlaut hann 9,9 í einkunn hjá Sofascore, sem telst til mikilla undantekninga hjá markvörðum þar sem einkunnirnar byggjast á tölfræði.

Danska blaðið Tipsbladet tók í sama streng og hrósaði Elíasi sérstaklega fyrir öryggi sitt þegar Vejle sótti hvað mest. Þar var bent á að hann hefði komið í veg fyrir að heimamenn næðu forystunni og þannig lagt grunninn að því að Midtjylland tryggði sér sigurinn.

Midtjylland situr nú í 2. sæti deildarinnar með níu stig eftir fimm umferðir, þremur stigum á eftir toppliði FC Kaupmannahafnar.

Fyrri frétt

Hákon skoraði í opnunarleiknum – Myndband

Næsta frétt

Íslenskt mark hjá Brann – Myndband