Íslenskt mark hjá Brann – Myndband

Alíslenskt mark leit dagsins ljós þegar Eggert Aron lagði upp mark fyrir Sævar Atla.
Ljósmynd/Brann

Sævar Atli Magnússon hélt uppteknum hætti í norsku úrvalsdeildinni í dag þegar hann skoraði eitt marka Brann í 2:1-útisigri á Tromsö.

Heimamenn í Tromsö komust yfir í fyrri hálfleik en eftir um klukkutíma leik jafnaði Sævar Atli metin með snyrtilegu marki. Eggert Aron Guðmundsson var þá nýlega kominn inn á sem varamaður og lagði upp markið með sinni fyrstu snertingu í leiknum.

Tólf mínútum síðar skoraði Denzel De Roeve sigurmark Brann og tryggði liðinu mikilvægan útisigur. Þetta var annað deildarmark Sævars fyrir Brann og fimmta mark hans í öllum keppnum síðan hann gekk í raðir liðsins frá Lyngby í sumar.

Brann, sem Freyr Alexandersson stýrir, er nú í þriðja sæti deildarinnar með 36 stig, sex stigum á eftir toppliðunum Bodö/Glimt og Viking. Næsta verkefni liðsins er Evrópuleikur gegn AEK Larnaca á fimmtudag.

Fyrri frétt

Elías Rafn átti stórleik í marki Midtjylland

Næsta frétt

Óttar Magnús kom­inn á blað hjá Renate