Óttar Magnús Karlsson gerði jöfnunarmark AC Renate í fyrsta leik sínum með liðinu í ítalska C-deildarbikarnum í gær. Renate mætti Pergolettese og lauk leiknum 1:1, en Renate tryggði sér að lokum sigur í vítaspyrnukeppni, 4:2.
Óttar Magnús, sem samdi nýverið við Renate til eins árs með möguleika á framlengingu, kom til liðsins frá SPAL þar sem hann lék á síðustu leiktíð. Hann hefur áður spilað víða erlendis og var meðal annars markahæsti leikmaður Oakland Roots í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum.
Renate mætir í næstu umferð annað hvort Juventus Next Gen eða Novara.
Mark Óttars í leiknum er hér að neðan.